BMW samsteypan seldi 2.117.965 ökutæki árið 2014 sem er 7,9% aukning milli ára. Söluaukningin í desember nam 15,7% milli ára. BMW framleiðir Mini og Rolls-Royce, auk BMW.

Alls seldust  1.811.719 BMW bílar sem er 9.5% aukning milli ára. Salan jókst um 14,2% í desember.

BMW seldi um 17.800 rafbíla og hefur ákveðið að auka framleiðslu á BMW i8 sportbílnum en 1.741 hafa selst.

Mest sala var á BMW 3, eða tæpalega 477 þúsund eintök. Um 373 þúsund bílar seldust af BMW 5 og 119 þúsund af BMW 4.