Mikil uppbygging á sér nú stað í landi Mosfellsbæjar og þar er meðal annars að rísa stórt sérbýlishúsahverfi í Leirvogstungu. Vegna mikillar eftirspurnar var vinnu við hverfið flýtt og í stað þess að selja lóðirnar á næstu fimm til sex árum stefnir í að þær verði allar seldar um áramót.