Lilja Kjalarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækisins SagaNatura og tekur hún við starfinu af Sjöfn Sigurgísladóttur sem er einn af stofnendum félagsins. Sjöfn tekur sæti í stjórn félagsins og mun auk þess leiða verkefni sem varða framþróun félagsins á Íslandi og erlendis í samstarfi við stjórn og framkvæmdastjóra. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Lilja lauk doktorsgráðu líflæknisvísindum (e. Biomedicine) frá UT Southwestern í Dallas árið 2011 og BSc gráðu í lífefnafræði frá Háskóla Íslands árið 2005. Að loknu doktorsnámi starfaði hún í þrjú ár við rannsóknir við Duke University. Eftir komuna til Íslands árið 2014 leiddi hún rannsóknir og þróun hjá líftæknifyrirtækinu Genís. Þar kom hún einnig að uppskölun framleiðslu og markaðssetningu. Lilja tók við stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra SagaNatura í byrjun árs 2018 og hefur unnið þétt með Sjöfn að uppbyggingu félagsins á síðastliðnum tveim árum. Lilja hefur einnig sinnt rannsóknum hjá Landspítalanum og kennslu við Háskólann í Reykjavík.

Sjöfn Sigurgísladóttir fráfarandi framkvæmdastóri, segir að SagaNatura hafi verið í örum vexti að undanförnu og hafi náð miklum árangri í sölu og uppskölun framleiðslunnar. „Það er mikill styrkleiki fyrir SagaNatura að fá kraftmikinn og reyndan stjórnanda og leiðtoga til að stýra rekstrinum áfram veginn", segir Sjöfn.

Lilja er gift Svavari Sigursteinssyni einkaþjálfara og ljósmyndara og eiga þau tvö börn.