Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express segir flugið til Bandaríkjanna vera uppbyggingarstarf en það hafi gengið mjög vel. "Við erum að fljúga sjö sinnum í viku til New York og fjórum sinnum til Boston og það er klárt að það verður aukning á þessu og það koma inn nýir áfangastaðir í Bandaríkjunum á næstu árum," segir Matthías í viðtali í Viðskiptablaðinu. Viðtalið í heild má lesa í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.