Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði óverulega, eða um 0,01% í viðskiptum dagsins í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,10%, en sá óverðtryggði lækkaði um 0,17%.

Velta með bréf í skuldabréfavísitölunni nam 1.779 milljónum og þar af voru viðskipti með óverðtryggð skuldabréf fyrir 1.174 milljónir.

Engin velta var með bréf í vísitölu fyrirtækjaskuldabréfa í dag.