Hlutabréf í Asíu hækkuðu lítillega í dag, eða um 0,1% mælt með DJ Asia-Pacific vísitölunni. Hong Kong leiddi hækkanir í Asíu og markaðurinn þar fór upp um 2,2%. Markaðurinn í Sjanghæ hækkaði um 1,6%  en í Japan lækkuðu hlutabréf um 0,1%. Þá lækkuðu hlutabréf í Ástralíu um 1,2%.