Hlutabréf lækkuðu á mörkuðum í Asíu í dag en það voru helst bílaframleiðendur sem ollu lækkun dagsins auk þess sem dekkjaframleiðendur og önnur framleiðslufyrirtæki lækkuðu nokkuð.

MSCI Kyrrahafsvísitalan, sem mælir helstu hlutbréfavísitölur í Asíu, lækkaði í dag um 1,1% og hefur nú lækkað um 4,2% síðustu fjóra daga að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 2,4%, í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 0,3% og í Kína lækkaði CSI 300 vísitalan um 1%.

Í Singapúr hækkaði Straits vísitalan hins vegar um 0,7% og í Ástralíu hækkaði S&P 200 vísitalan um 1,4%.

Margar kauphallir lokuðu snemma í dag vegna jólanna.