Hlutabréfamarkaði í Evrópu hafa lækkað það sem af er degi og hefur FTSEurofirst 300 vísitalan lækkað um 0,15% síðan í morgun.

Olíufélögin hækka þó og til dæmis hefur BP hækkað um 1% og Shell um 0,6% það sem af er degi.

Í Lundúnum stendur FTSE 100 vísitalan í stað en í Amsterdam hefur AEX vísitalan lækkað um 0,5%. Þá hefur DAX vísitalan í Frankfurt lækkað um 0,6% og í París hefur CAC 40 vísitalan lækkað um 0,3%.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan  lækkað um 0,8% en í Osló hefur OBX vísitalan hækkað um 1,5%.