Hlutabréfamarkaðir lækkuðu lítillega í dag en að sögn Reuters fréttastofunnar voru það helst bankar og fjármálafyrirtæki annars vegar og orkufyrirtæki hins vegar sem leiddu lækkanir dagsins.

FTSE 300 vísitalan lækkaði um 2,6%.

Viðmælandi Reuters segir að frekari samdráttur í Bandaríkjunum muni hafa mikil áhrif í Evrópu og því megi búast við frekari lækkun markaða á næstu misserum.

Í Lundúnum lækkaði FTSE 100 vísitalan um 1,7%, í Amsterdam lækkaði AEX vísitalan um 1,1% og í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan um 1,6%.

Í París lækkaði CAC 40 vísitalan um 1,5% og í Sviss lækkaði SMI um 2,3%.

Í Kaupmannahöfn lækkaði OMXC vísitalan um 1,9%, í Stokkhólmi lækkaði OMXS vísitalan um 2,3% og í Osló lækkaði OBX vísitalan um 4,1%.