Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) hefur bætt við sig 73 milljón hlutum í Símanum samkvæmt flöggun til kauphallarinnar. Sé miðað við gengi bréfa Símans sem stendur þegar þetta er skrifað í 3,71 krónu á hlut nam kaupvirði hlutanna um 270 milljónum króna.

Fyrir viðskiptin átti LSR 907 milljón hluti í Símanum en á nú 980 milljón hluti eða því sem nemur 10,38% af hlutafé félagsins. Miðað við gengi bréfa Símans nemur markaðsvirði hlutarins því um 3,6 milljörðum króna.