Lýður Heiðar Gunnarsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eikar fasteignafélags hf. Hann mun taka við starfinu af Kolbeini Friðrikssyni á næstu mánuðum.

Lýður er viðskiptafræðingur að mennt frá Háskólanum í Reykjavík og lauk meistaraprófi í fjárfestingarstjórnun frá sama skóla árið 2010. Einnig er Lýður löggiltur verðbréfamiðlari.

Lýður hefur víðtæka reynslu úr fjármálakerfinu. Frá árinu 2009 hefur hann starfað hjá Lífsverki lífeyrissjóði. Þá starfaði hann einnig á fjármálasviði FL Group hf. og á eignastýringarsviði Landsbankans frá árinu 2002.

Lýður hefur setið í ýmsum stjórnum eins og stjórn Nýs Norðurturns hf. og hjá Virðingu hf.