Lýður Guðmundsson hefur ákveðið að hætta sem forstjóri Bakkavarar og taka við sem starfandi stjórnarformaður fjárfestingafélagsins Exista. Þetta kom fram á aðlafundi Bakkavarar í gær.

Stefnt er að skráningu Exista í Kauphöll Íslands og unnið er að losa um krosseignartengsl Exista og Kaupþings banka.