Lýður Þór Þorgeirsson hefur hafið störf hjá GAM Management og verður sjóðsstjóri nýs skuldabréfasjóðs hjá Gamma. Lýður vann hjá skilanefnd Kaupþings sem lánastjóri erlendra lána og við ýmis sérverkefni. Hann starfaði áður við fyrirtækjaráðgjöf og innheimtu fyrirtækjalána hjá Kaupþingi og Nýja Kaupþingi. Árin 2000-2005 starfaði Lýður hjá Glitni bæði við skuldsetta fjármögnun evrópskra fyrirtækja (leveraged finance) og við áhættustýringu með áherslu á eftirlit með markaðs- og mótaðilaáhættu.

Lýður er með MBA frá MIT Sloan og er B.Sc. í rafmagns- og tölvuverkfræði. Hann hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og hefur kennt verðmat fyrirtækja.