Spa Land Centum City er ágætisstaður fyrir ferðamanninn sem elskar gufuböð en Spa Land er ein stærsta og magnaðasta gufubaðstofan í landinu.
Spa Land Centum City er í Busan, næststærstu borg Suður- Kóreu. Gufubaðstofan er inni í Shinsegae Department Store Centum City sem er talin vera stærsta búð í heimi.
Andrúmsloftið í Spa Land er algjör andstæða við hamaganginn sem er í stóra verslunarhúsinu sem er opið allan sólarhringinn. Og börnum yngri en 13 ára er meinaður aðgangur sem þykir sérstakt þar sem heimsóknir í gufubaðhús er mikil fjölskylduskemmtun í Suður-Kóreu.
Alls konar þemaherbergi og sérstakar laugar eru í Spa Land og úrvalið á meðferðum er endalaust. Sjá nánar hér .