Magnús Örn Guðmundsson, sjóðstjóri hjá sjóðastýringarfyrirtækinu Stefni, tekur sæti aðalmanns í bæjarstjórn Seltjarnarness nú um áramótin. Magnús var áður fyrsti varabæjarfulltrúi, en hann er jafnframt formaður Íþrótta- og tómstundaráðs og situr í skólanefnd. Magnús Örn er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og með MBA gráðu frá Northeastern University í Boston auk prófs í verðbréfaviðskiptum.