Magnús Jónsson, forstjóri Atorku Group ehf., hefur í gegnum félag sitt Magna Capital ehf. keypt 45.000.000 hluti í Atorku Group á genginu 6,05.

Samhliða viðskiptunum er gerður samningur við Atorku Group hf. um sölurétt sem ver kaupandann fyrir mögulegu tapi af viðskiptunum.

Samkvæmt samningnum er kaupandanum skylt að eiga hlutina í 1 til 3 ár. Eftir viðskiptin á Magnús og tengdir aðilar 340.881.000 hluti í Atorku Group en miðað við gengið 6,05 er markaðsvirði þess rúmir tveir milljarðar.