Magnús Bollason
Magnús Bollason
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Magnús Bollason hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Tempru ehf. Magnús hefur undanfarin 20 ár starfað hjá Nóa Síríus, síðustu 12 ár sem framkvæmdastjóri framleiðslusviðs.

Hann er með MS gráðu í stjórnun og forystu og BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og BS gráðu í iðnaðartæknifræði frá Tækniskóla Íslands.

Tempra framleiðir umbúðir til flutnings á ferskum matvælum og einangrunarplast til byggingarframkvæmda. Félagið rekur tæknivædda verksmiðju að Íshellu 8 í Hafnarfirði og hjá því starfa um 30 manns.

„Tempra er traust og framsækið fyrirtæki sem er þekkt fyrir frábæra þjónustu við viðskiptavini sína, nýsköpun og vörugæði,“ sagði Magnús.

„Það er mjög spennandi og skemmtilegt að hafa fengið tækifæri til að ganga til liðs við þann frábæra hóp starfsfólks sem starfar hjá fyrirækinu og taka þátt í því að þróa það áfram og efla enn frekar.“