Magnús Jónsson tók nýverið við sem sviðsstjóri endurskoðunar KPMG.

Magnús hóf störf hjá KPMG árið 2001, hlaut löggildingu sem endurskoðandi 2008, varð hluthafi árið 2011 og hefur verið ábyrgur fyrir starfsemi KPMG á Austurlandi um árabil. Hann hefur auk þess gegnt hlutverki fagstjóra endurskoðunar (e. Head of Audit Quality) sem felur m.a. í sér ábyrgð á gæðamálum, fræðslu og starfsþróun á endurskoðunarsviði félagsins.

Magnús hefur umfangsmikla reynslu af endurskoðun og stjórnun endurskoðunarverkefna. Hann hefur verið endurskoðandi fjölmargra sveitarfélaga og aðila er tengjast almannahagsmunum auk þess að sinna fjölbreyttum verkefnum á svið reikningsskila og skattamála. Þá hefur Magnús setið í Siðanefnd Félags löggiltra endurskoðenda og stjórn KPMG ehf.

Hjá KPMG starfa um 280 manns og þar af um 120 manns á endurskoðunarsviði. Starfsstöðvar félagsins eru alls 16 talsins og starfar um þriðjungur starfsmanna utan Reykjavíkur. KPMG hefur ávallt nýtt tækifæri og mannauð óháð staðsetningu og með aukinni tækni er slíkt enn auðveldara en fyrr. Endurspeglar ráðning Magnúsar sem er búsettur á Egilsstöðum þær áherslur og þróun með ágætum hætti.