Már Guðmundsson seðlabankastjóri sendi í dag bréf til Piotr Wiesioleks starfandi seðlabankastjóra Póllands með samúðar­kveðjum vegna fráfalls Slawomirs Stanislaws Skrzypeks seðlabankastjóra Póllands í flugslysi í Rússlandi í dag.

Í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands segir að í bréfinu hafi komið fram að samvinna Seðlabanka Íslands og Seðlabanka Póllands hafi aukist á undanförnum árum og persónuleg tengsl skapast meðal annars í stuttri heimsókn Slawomirs og konu hans til Íslands sumarið 2008. Þá hafi Már kynnst Slawomir bæði í starfi fyrir Alþjóðagreiðslu­bankann í Sviss og enn nánar eftir að hann tók við embætti seðlabankastjóra á Íslandi.

Í lok bréfsins tók seðlabankastjóri fram að hann vonaðist til að hægt yrði að heiðra minningu Slawomirs með því að þróa áfram vinsamleg samskipti og samvinnu seðlabanka Íslands og Póllands.