Marel Food Systems hefur endurgreitt að fullu skuldabréfaflokk (MARL 09 1) sem skráður er í Kauphöllinni með gjalddaga í dag, 20. maí 2009.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en meðallíftími skulda er rúmlega fjögur ár og eru gjalddagar á tímabilinu nóvember 2011 til maí 2017.

Þá kemur fram að nýr skuldabréfaflokkur að upphæð 3,6 milljarðar króna, sem samsvarar 21 milljónum evra, hefur verið gefinn út með gjalddaga í nóvember 2011.  Íslandsbanki, NBI og Nýja-Kaupþing hafa veitt sambankalán að upphæð 116 milljónum evra.

Fram kemur að allir afleiðusamningar hafa verið gerðir upp að fullu og Glitnir hefur veitt lán til fimm ára að upphæð 34 milljónir evra.  Meðal vaxtaálag lána samstæðunnar hefur breyst á einu ári úr Libor/Reibor + 300 bps í Libor/Reibor +450 bps á sama tíma og grunnvextir (Libor/Reibor) hafa lækkað umtalsvert.

„Við erum þakklát því trausti sem lánadrottnar okkar hafa sýnt okkur. Þeir deila þeirri skoðun okkar að langtímahorfur í rekstri séu góðar,“ segir Theo Hoen, forstjóri Marel Food Systems í tilkynningunni.

„Eftir að hafa tryggt stöðuleika í fjármögnun getum við nú einbeitt okkur að daglegum rekstri sem mun gera okkur kleift að ná markmiðum okkar um rekstrarhagnað (EBIT) uppá 10-12% af sölu frá og með árinu 2010.“

Árni  Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marel Food Systems segir í tilkynningunni að íslensku bankarnir hafi sýnt styrk sinn með því að taka höndum saman um að tryggja langtímafjármögnun félagsins.

„Við erum jafnframt mjög ánægð með það traust sem lífeyrissjóðir og aðrir fagfjárfestar sem tóku þátt í skuldabréfaútboðinu félagsins hafa sýnt okkur,“ segir Árni Oddur en að auki veitti hópur banka í Vestur Evrópu undir forystu Rabobank félaginu langtímalán árið 2008 með gjalddaga árin 2016 og 2017.