Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,59% í dag og endaði í 1.375,86 stigum. Gengi bréfa Marels hækkaði um 2,76%, NýHerja um 1,72% og Eimskipafélagsins um 1,05%.

Gengi bréfa Össurar lækkaði um 1,23%, Sjóvár um 1,00% og Icelandair Group um 0,69%. Velta á hlutabréfamarkaði í dag nam 1.548,2 milljónum króna og þar af var velta með bréf Marels 578,9 milljónir.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,16% í 3,6 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,27% en sá óverðtryggði hækkaði um 0,08%.