Marel seldi í dag 1.961.950 hluti á genginu 85,7 krónur á hlut. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu til Kauphallarinnar.

Kaupverðið nemur því um 168 milljónum króna. Skráð gengi hlutabréfa félagsins stendur nú í 152,5 krónum á hlut samkvæmt upplýsingum frá Keldunni.

Ástæður viðskiptanna eru til að mæta skilyrðum um framkvæmd kaupréttarsamninga. Félagið á eftir viðskiptin 4.995.900 hluti.