Markaðsvirði KB banka nálgast 650 milljarða króna en bréf félagsins hafa hækkað um 3,52% það sem af er morgni. Það hefur haft veruleg áhrif á vísitöluna sem hefur hækkað um ríflega 1,5%. Gengi bréfa KB banka er nú 971 og nálgast óðum 1.000 stiga múrinn.