Vefpressan hefur lýst yfir áhuga sínum á mögulegum kaupum á Skjámiðlum, sem eiga m.a. sjónvarpsstöðina SkjáEinn. Þessu hefur verið komið formlega á framfæri við Skipta, eigendur Skjámiðla.

Björn Ingi Hrafnsson.
Björn Ingi Hrafnsson.
© BIG (VB MYND/BIG)
Samkvæmt Birni Inga Hrafnssyni, útgefanda Vefpressunar, liggur mögulegt kaupverð ekki fyrir á þessu stigi málsins en stjórnendur Skipta hafa lýst því yfir að flest sem tilheyri því félagi kunni að vera til sölu fyrir rétt verð.

Markmið kaupanna segir Björn Ingi vera að halda áfram uppbyggingu Vefpressunnar sem alhliða fjölmiðlafyrirtækis og nýta þá möguleika sem eru til framtíðar í rekstri fjölmiðla og verslunarstarfsemi tengdum þeim, t.d. netverslunum.