Gengið hefur verið frá samningi um kaup írska fyrirtækisins Marigot, eiganda Íslenska kalkþörungafélagsins á Bíldudal, á 60% hlut í nýsköpunarfyrirtækinu Marinox ehf., sem er í eigu Matís ohf. og tveggja lykilstjórnenda þar. Gefið verður út nýtt hlutafé fyrir hlut Marigot í kjölfarið. Kemur þetta fram í frétt á vefsíðu Matís.

Um er að ræða þann hluta fyrirtækisins sem heldur utan um rannsóknir og vinnslu hráefna úr hafinu, þang og þara. Fyrirtækið verður því rekið áfram með sama nafni en með nýjum ráðandi hluthafa. Samhliða hlutafjáraukningu í Marinox verður húðvörulínan, UNA Skincare, skilin frá fyrirtækinu og sett í nýtt félag, sem til að byrja með verður í eigu sömu aðila og eiga Marinox nú. Í beinu framhaldi verður leitað að nýjum fjárfestum í UNA Skincare.