Íslandsbanki skilaði methagnaði á öðrum ársfjórðungi. Hagnaður á öðrum ársfjórðungi nam 7.519 m.kr. eftir skatta, en var 2.469 m.kr. á öðrum ársfjórðungi í fyrra. Hagnaður fyrstu sex mánuði ársins var 10.557 m.kr. eftir skatta samanborið við 7.357 m.kr. árið 2004. Rekstrartölur fyrir árið 2004 hafa verið aðlagaðar alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

Hagnaður fyrir skatta nam 12.326 m.kr. fyrri hluta ársins, samanborið við 8.730 m.kr. á sama tímabili í fyrra.

Hagnaður á hlut var 0,83 á fyrri árshelmingi. Hagnaður á hlut var 0,58 krónur á öðrum ársfjórðungi, en var 0,24 krónur á sama tímabili í fyrra.

Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 37% á fyrri helmingi ársins 2005, en var 64% á sama tímabili í fyrra.

Hreinar vaxtatekjur voru 10.051 m.kr. á fyrri árshelmingi og jukust um 71% frá fyrra ári. Þær námu 5.586 m.kr. á öðrum ársfjórðungi samanborið við 3.145 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2004.

Kostnaður sem hlutfall af tekjum var 36% á fyrri árshelmingi og 29% á öðrum fjórðungi 2005.

Vaxtamunur var 2,1% fyrstu sex mánuðina, en var 2,5% á sama tímabili í fyrra og er lækkunin að hluta til vegna innkomu BNbank í samstæðuuppgjör bankans. Sú breyting hefur jafnframt lykiláhrif á þær efnahagsstærðir sem koma hér að neðan.

Heildareignir samstæðunnar námu 1.335 milljörðum króna 30. júní 2005 og höfðu þá aukist um 97% frá áramótum eða um 657 milljarða.

Lán og kröfur samstæðunnar námu 1.111 milljörðum króna 30. júní og höfðu aukist um 114% á árshelmingnum.

Heildarinnlán námu 360 milljörðum í lok 2. ársfjórðungs og jukust um 102% frá áramótum.

Eignir í stýringu námu 298 milljörðum króna og jukust um 8% á ársfjórðungnum.

Eigið fé nam 77 milljörðum króna í lok júní og var eiginfjárhlutfall á CAD grunni 12,4%, þar af A-hluti 9,2%.

Í yfirlýsingu segir Bjarni Ármannsson, forstjóri:

?Að baki er besti ársfjórðungur í sögu Íslandsbanka. Uppgjörið ber einkenni mikilla breytinga í starfsemi félagsins. Eignir hafa tæplega tvöfaldast við innkomu BN bankans og rekstur Sjóvá er ekki lengur hluti af samstæðureikningi bankans. Starfsemi utan Íslands er orðinn verulegur hluti af tekjum og sala á tæplega tveimur þriðju hlutar í Sjóvá gefur tækifæri til frekari vaxtar. Þá eru þjónustutekjur meiri vegna aukinna verkefna. Uppgjörið undirstrikar fyrst og fremst sterkan undirliggjandi rekstur sem sýnir sig í því að öll afkomusviðin eru að skila góðum hagnaði. Framundan er áframhaldandi sókn á öllum sviðum byggð á þeim grunni sem lagður hefur verið?.