Michael Howard fyrrum formaður breska Íhaldsflokksins verður formaður Northern Racing sem er í eigu Reuben bræðra. Northern Racing rekur níu veðreiðabrautir víðs vegar á Englandi.

Fréttavefur Telegraph greinir frá þessu.

Howart var formaður Íhaldsflokksins frá 2003 til 2005. Hann er dyggur áhugamaður veðreiðakeppna. Hann segist hafa stórar hugmyndir um hvernig gera má íþróttina vinsælli með markaðssetningu.

Talið er að Reuben bræður hafi leitað til Howards vegna þeirra markaðshugmynda sem hann hefur um íþróttina.

Reuben bræður eru meðal ríkustu manna á Bretlandi. Þeir efnuðust mjög á verslun með málma á áttunda og níunda áratug síðustu aldar.