Óhætt er að segja að rífandi gangur hafi verið í OMX Nordic Exchange á 1. ársfjórðungi. Meðalvelta hlutabréfa á dag var 474,7 milljarðar króna samanborið við 400,6 milljarða meðalveltu síðustu tólf mánaða samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Meðalfjöldi viðskipta á dag var 180.103 en var 139.729 á síðustu tólf mánuðum. Meðalfjöldi viðskipta með afleiður á sænsk, finnsk og dönsk hluta- og skuldabréf var 632.806 samningar á dag samanborið við 564.113 samninga á síðustliðnum 12 mánuðum