Gengi hlutabréfa VÍS hækkaði um 1,02% í Kauphöllinni í dag í viðskiptum upp á 277 milljónir króna. Þetta var mesta hækkun dagsins.

Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Haga um 0,60%, Icelandair Group um 0,32%, Eimskips um 0,22% og TM um 0,17%.

Gengi hlutabréfa Vodafone lækkaði hins vegar um 0,56%, Marel um 0,39% og Regins um 0,07%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,17% og endaði hún í 1.150 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam rúmum 1,2 milljörðum króna. Mest voru viðskipti með hlutabréf Icelandair Group eða upp á 648 milljónir.