Hlutabréf lækkuðu nokkuð í Evrópu í dag, annan daginn í röð, en að sögn Reuters fréttastofuna má rekja hækkanir dagsins til vona fjárfesta um að Seðlabanki Bandaríkjanna tilkynni á eftir um stýrivaxtalækkun.

FTSEurofirst 300 vístalan hækkaði um 6,9% en hafðu um tíma hækkað um 7,5% í dag.

Þá hækkuðu olíufélögin BP, Shell og Total á bilinu 9,6% - 13,6% í dag.

Það voru hins vegar bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu hækkanir dagsins. Þannig hækkaði Barclays um 6%, HBOS um 9% og Royal Bank of Scotland um 10% en félagið hafði um tíma hækkað um 22% í dag.

Í Lundúnum hækkaði FTSE 100 vísitalan 8,1% í dag, í Amsterdam hækkaði AEX vísitalan um 9,1% en í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan hins vegar um 0,3%.

Í París hækkaði CAC 40 vísitalan 9,2% og í Sviss hækkaði SMI vísitalan um 6,2%.

Í Kaupmannahöfn hækkaði OMXC vísitalan um 7,4%, í Stokkhólmi hækkaði OMXS vísitalan um 6% og í Osló hækkaði OBX vísitalan um 2,8%.