Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's lækkaði lánshæfiseinkunn 26 ítalskra banka í gærkvöld, þeirra á meðal Uinicredit.

Moody's segir ástæðu lækkunarinnar vera varnarleysi bankanna fyrir því ef efnahagskreppan magnast á evrusvæðinu. Lánshæfiseinkunn ítalskra banka er nú með því lægsta sem gerist í Vestur-Evrópu.