Lánshæfismatsfyrirtækið Moody"s staðfesti í dag óbreytt A3/P-1/C lánshæfimat Landsbankans með jákvæðum horfum í kjölfar þess að bankinn tilkynnti um yfirtöku á breska verðbréfafyrirtækinu Teather & Greenwood. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.