Verslanakeðjan Mosaic, sem er að 49% í eigu Baugs og 20% í eigu Kaupþings, segist velta því fyrir sér að selja kvenfatakeðjuna Principles. Mosaic rekur fleiri keðjur, svo sem Karen Millen, Oasis og Coast. Að sögn The Independent er Philip Green einn af þeim sem sýnt hafa áhuga á Principles en Mosaic segist ekki vilja selja frá sér fleiri merki.

Kaupþing hefur fallist á að afsala sér tímabundið réttinum til nokkurra ákvæða í lánasamningum og vaxtagreiðslna fram að næsta vaxtadegi, sem ekki er tiltekinn, að sögn The Independent. Mosaic á í viðræðum við Kaupþing um frekara handbært fé inn í reksturinn.