Fyrirtækið CKX Inc. sem sérhæfir sig í sérleyfum hefur keypt 80% í réttindum á nafni, ímynd og útliti boxarans Muhammad Ali og stofnar félag um eigina. Þetta kemur fram í Hálffimm fréttum Kaupþings banka.

CKX á nú þegar sambærileg réttindi rokkarans Elvis Presley. Fram kemur að til standi að markaðsvæða enn frekar nafn, ímynd og útlit boxarans til dæmis með auglýsingasamningum.

CKX greiðir 50 milljónir dollara fyrir 80% hlut í félaginu auk þess sem Ali á 20%.

Félagið heitir G.O.A.T. LLC og stendur fyrir "Greatest Of All Time."