Múrbúðin hefur sent kvörtun til ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, vegna yfirtöku Landsbankans á Húsasmiðjunni. Félagið sendir kvörtunina vegna vangetu Samkeppniseftirlitsins til að tryggja eðlilega samkeppni frá fyrirtækjum á byggingavörumarkaði sem bankarnir hafa yfirtekið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Múrbúðinni.

Í fréttatilkynningu frá Múrbúðinni segir að fyrirtækið telji yfirtöku og eignarhald Landsbankans á Húsasmiðjunni fela í sér misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Múrbúðin telur einnig að eignarhaldið feli í sér ólögmætan ríkisstyrk. Landsbankinn brjóti þar með lög EES samningsins.

Baldur Björnsson, framkvæmdarstjóri Múrbúðarinnar segir að meðvirkni Samkeppniseftirlitsins gefi Múrbúðinni engan annan kost en að kæra til ESA. „ Bankarnir og yfirteknu fyrirtækin gefa skít í skilyrði Samkeppniseftirlitsins um samkeppnishegðun. Bankarnir dæla peningum í þessi ónýtu fyrirtæki til að tryggja hámarks verðmæti þeirra þegar kemur að sölu. Í tilfelli Húsasmiðjunnar er ruglið algjört, því þar er Landsbankinn að nota skattpeninga til að tryggja markaðsyfirráð þessa gjaldþrota fyrirtækis. “

„Enginn fer eftir skilyrðum Samkeppniseftirlitsins og stofnunin fylgir þeim heldur ekkert eftir. Vegna þessarar meðvirkni Samkeppniseftirlitsins sjáum við engan annan kost en leita út fyrir landsteinana, til ESA, til að stuðla að einhverri glóru í samkeppni á byggingavörumarkaði,“ segir Baldur.

Í tilkynningunni frá Múrbúðinni segir einnig:

Í kvörtun Múrbúðarinnar til ESA er bent á að hegðun Húsasmiðjunnar á markaði bendi ekki til þess að Landsbankinn geri skýrar arðsemiskröfur til fyrirtækisins. Miklu fremur bendi allt til þess að „arðsemin“ eigi að skila sér í háum verðmiða þegar Húsasmiðjan verður seld, á grundvelli yfirburða markaðsstöðu sem fæst með aðstoð ótakmarkaðrar lánafyrirgreiðslu frá Landsbankanum.

Í kvörtuninni bendir Múrbúðin einnig á að rekstur Landsbankans á Húsasmiðjunni sé brot á 1. málsgrein 61. greinar EES samningsins um ríkisstyrki, þar sem Landsbankinn er að mestu í eigu ríkisins og fjármagnaður með skattfé.

Í niðurlagi kvörtunarinnar til ESA segir Múrbúðin að samkeppnisreglum sé ekki ætlað að vernda óskynsama fjárfesta og fjármálafyrirtæki.