Fjölmiðlamógúlinn Rupert Murdoch hefur gefið út yfirlýsingu þar sem hann slær á vangaveltur um að fyrirtæki í hans eigu ætli að bjóða í leitarvefinn Yahoo.

Murdoch segir að á þessu stigi málsins hafi fyrirtæki hans, News Corporation, einfaldlega engan áhuga á Yahoo.

Microsoft bauð 44,6 milljarða Bandaríkjadali í Yahoo föstudaginn var en þá voru upp vangaveltur um að News Cororation mundi bjóða á móti Microsoft.