Á mánudag opnaði Íslandsbanki nýtt útibú í Norðurturni í Kópavogi en þangað flytja höfuðstöðvar bankans á nýju ári. Hér má sjá myndir.
Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson
Deila
Íslandsbanki opnaði nýtt útibú á 1. hæð Norðurturnsins í Kópavogi og sameinast þar þrjú útibú bankans, það er útibúin í Þarabakka, á Digranesvegi og á Garðatorgi.
Er stefnt að því að höfuðstöðvar bankans flytjist í turninn á nýju ári og er flutningurinn þegar hafinn og fyrstu 100 starfsmennirnir eru komnir á staðinn.