Á tólf árum hefur fjöldi erlendra ferðamanna í júlí næstum þrefaldast, samkvæmt tölum Ferðamálastofu. Um 123 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í nýliðnum júlí eða 11.400 fleiri en í júlí í fyrra. Það er 10,2% aukning milli ára.

Þegar litið er til fjölda ferðamanna í júlí á því tólf ára tímabili (2002-2013) sem Ferðamálastofa hefur haldið úti talningum má sjá umtalsverða fjölgun erlendra ferðamanna. Þeim hefur fjölgað úr 46 þúsund árið 2002 í um 123 þúsund árið 2013 eða um 77 þúsund ferðamenn. Aukningin milli ára hefur verið að jafnaði 9,7% en sveiflur milli ára hafa hins vegar verið talsvert miklar.

Flestir koma frá Bandaríkjunum og Þýskalandi
Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í júlí síðastliðnum frá Bandaríkjunum (14,9%) og Þýskalandi (12,2%). Þar á eftir komu Frakkar (8,2%), Bretar (8,1%), Danir (7,2%), Norðmenn (5,1%), Svíar (4,3%), Hollendingar (3,4%) og Svisslendingar (3,4%). Samtals voru þessar níu þjóðir um tveir þriðju (66,8%) ferðamanna í júlí.

Af einstaka þjóðum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Frökkum og Bretum mest milli ára í júlí. Þannig komu 3.492 fleiri Bandaríkjamenn í júlí ár, 1.729 fleiri Frakkar og 1.448 fleiri Bretar. Færri Svíar, Þjóðverjar og Norðmenn komu hins vegar í júlí í ár en í fyrra.

Ferðamönnum frá Norðurlöndum fjölgar ekki
Þegar aukning milli ára er skoðuð eftir einstaka markaðssvæðum má sjá 22,3% aukningu N-Ameríkana, 17,0% aukningu Breta, 5,9% aukningu Mið- og S-Evrópubúa og 19,4% aukningu þeirra sem koma frá löndum sem flokkuð eru undir annað. Norðurlandabúum fækkar hins vegar um 4,4%.