Kröfuhafar Teymis samþykktu á fundi sínum í dag, að breyta hluta af kröfum sínum í hlutafé í Teymi. Samkvæmt frumvarpi til nauðasamnings sem borið var undir atkvæði á fundinum munu kröfuhafar með þessu eignast félagið ásamt dótturfélögum þess að fullu. Fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins er því lokið og óvissunni um framtíð Teymis hefur því verið eytt segir í tilkynningu.

Í tilkynningu félagsins segir að mikil samstaða hafi verið meðal kröfuhafa um að hag þeirra væri best borgið með samþykkt nauðasamningsins. Einungis einn aðili greiddi ekki atkvæði með samningnum, þ.e. Líftryggingafélag Íslands hf., sem er dótturfélag Exista hf., en þeir sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

Félagið mun nú óska formlegrar staðfestingar Héraðsdóms Reykjavíkur líkt og lög gera ráð fyrir. Í kjölfarið verður boðað til hluthafafundar þar sem hið nýja hlutafé verður staðfest og   ný stjórn kosin fyrir félagið. Gert er ráð fyrir að nýir eigendur taki formlega við félaginu eigi síðar en í ágúst næstkomandi.

Teymi hf. er eignarhaldsfélag á sviði fjarskipta og upplýsingatækni. Félagið leggur áherslu á einfalda og skilvirka stjórnun allra fyrirtækja innan samstæðunnar, skjóta ákvarðanatöku og hagkvæma uppsetningu. Lítil yfirbygging, aðhald í rekstri og aukin skilvirkni er okkar markmið.