Norska vátryggingafélagið NEMI Forsikring ASA, sem er alfarið í eigu Tryggingamiðstöðvarinnar hf., hefur fengið lánshæfismat BBB/Stable outlook hjá matsfyrirtækinu Standard and Poor´s. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Tryggingamiðstöðin er í eigu FL Group.