Vísitala neysluverðs í ágúst 2005 er 243,2 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,21% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 227,5 stig, lækkaði um 0,18% frá því í júlí.

Sumarútsölur halda enn áfram og leiddu til 6,6% verðlækkunar á fötum og skóm (vísitöluáhrif -0,33%).

Eigið húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 2,0% (0,32%). Þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs á húsnæði 0,37% en á móti vógu áhrif af lækkun meðalvaxta, -0,05%. Verð á dagvöru hækkaði um 0,84% (0,13%). Verð á bensíni og olíum hækkaði um 1,9% (0,09%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,7% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 0,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,0% sem jafngildir 4,2% verðbólgu á ári (0,2% verðbólga fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í ágúst 2005, sem er 243,2 stig, gildir til verðtryggingar í september 2005. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.802 stig fyrir september 2005.