„Hækkandi eignaverð hefur jafnan í för með sér svokölluð auðsáhrif, en neytendur telja sig ríkari er eignir hækka í verði og auka neyslu sína af þeim sökum,“ segir Greiningardeild Kaupþings í Hálffimm fréttum í dag.

„Þegar eignaverð lækkar eru áhrifin á hinn veginn og samdráttar gætir í einkaneyslu.“

Í Hálffimm fréttum kemur fram að á síðustu árum hefur orðið mikil hækkun raunverðs eigna  þar sem árshækkunin hefur numið allt að 30%.

Viðsnúningur hefur hins vegar orðið á síðustu mánuðum og mælist tólf mánaða raunbreyting eignaverðs nú neikvæð sem nemur 17,4%.

Eignaverð lækkaði að nafnverði um 0,3 % í júlí samkvæmt Eignaverðsvísitölu Kaupþings. Árslækkun eignaverðs er  því 6,2% og mælist neikvæð aukning þriðja mánuðinn í röð.

Þá kemur fram að raunbreyting eignaverðs í júlí var neikvæð sem nemur 1,2% en breyting raunverðs hefur mælst neikvæð í öllum mánuðum síðan í júlí á síðasta ári.

Eignaverðsvísitala samanstendur af breytingum í verði hlutabréfa, skuldabréfa og fasteigna sem vegnar eru eftir hlutdeild í eignasöfnum heimilanna.

„Þróun eignaverðsvísitölu gefur því vísbendingu um almenna þróun á virði eigna heimila,“ segir Greiningardeild Kaupþings.

Þá segir Greiningardeildin að í sögulegu samhengi hefur heildarvelta greiðslukorta gefið sterkar vísbendingar um þróun einkaneyslu.

„Í því ljósi er áhugavert að líta til þess að einnig er fylgni milli eignaverðs og kortaveltu og hér til hliðar má sjá hin neikvæðu auðsáhrif. Þróun eignaverðsvísitölunnar varpar því frekara ljósi á samdrátt einkaneyslu sem má búast við að gera vart við sig í tölum annars ársfjórðungs,“ segir í Hálffimm fréttum.