Ingvar Helgason hefur nú hafið þjónustuinnköllun á pallbílum af gerðinni Nissan Navara.

Bílarnir eru kallaðir inn til þess að endurstilla megi ræsibúnaðinn sem stjórnar því hvernig loftpúðar bílsins springa út við árekstur framan á hann. Endurstillingunni er ætlað að tryggja hraðari ræsingu loftpúðanna. Þetta kemur fram á heimasíðu Ingvars Helgasonar ehf.

Þjónustuinnköllunin nær til allra Navara-pallbíla af nýju gerðinni sem seldir voru frá byrjun árs 2005 til loka árs 2007.

Eigendum er boðið að heimsækja Ingvar Helgason á Sævarhöfða 2, eða einhvern viðurkenndan þjónustuaðila, til þess að láta endurstilla ræsibúnaðinn.

Þá kemur fram að fyrirtækið mun hafa samband við alla eigendur Nissan Navara bréfleiðis til þess að tryggja að bílarnir sem um ræðir séu með þennan endurbætta hugbúnað.