Ef fram fer sem horfir, í kjölfar afskráningarfrétta Teymis, fara níu félög af markaði á þessu ári. 365, FL Group, Flaga Group, Icelandic Group, Skipti  og TM eru þegar farin. Það á eftir að kjósa um samruna Spron og Kaupþings. Og líklegt þykir að Vinnslustöðin fari af markaði í haust.