Úrvalsvísitala kauphallar Nasdsaq Iceland lækkaði um 0,25% í viðskiptum dagsins. Heildarvelta á markaði nam 5,8 milljörðum. Þar af var velta á hlutabréfamarkaði 995 milljónum og 4,8 milljörðum á skuldabréfamarkaði.

Talsvert var um lækkanir á markaði. Þar á meðal lækkaði gengi bréfa Marel um 0,58% í 49,6 milljón króna viðskiptum. Gengi bréfa Marels lækkaði einnig um 0,82% í tiltölulega litlum viðskiptum. Gengi bréfa í TM lækkaði um 1,14% í 42,8 milljón króna viðskiptum og einnig lækkaði gengi bréfa Sjóvá um 0,74% í 145,3 milljón króna viðskiptum.

Gengi bréfa í Eimskipafélags Íslands hækkaði hins vegar um 0,3% í 356,7 milljón króna viðskiptum. Einnig hækkaði gengi bréfa Regins um 0,6% í 145,3 milljón króna viðskiptum.