Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra opnaði fyrir hönd Íslands Norræna fyrirtækjasetrið, eða Nordic Innovation House-New York, við hátíðlega athöfn í New York borg í gær. Setrið er ætlað smáum og meðalstórum fyrirtækjum sem sækja á Bandaríkjamarkað og geta þar fengið aðstöðu, ráðgjöf og staðbundið tengslanet. Fyrirtækjasetrið er samstarfsverkefni Norðurlandanna fimm; Íslands, Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs og Finnlands með stuðningi Nordic Innovation og Norrænu ráðherranefndarinnar, segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
„Hér er utanríkisþjónustan að sinna því hlutverki sem ég hef lagt megin áherslu á - viðskiptasókn og þjónustu við atvinnulífið - sem er einmitt kjarni þeirrar framtíðarsýnar sem birtist í nýrri skýrslu um utanríkisþjónustuna. Við opnum dyr fyrir smærri og meðalstór fyrirtæki að spennandi mörkuðum í gegnum norrænafyrirtækjasetrið sem var að opna í New York borg. Verkefnið, fyrir hönd Íslands, er sett upp og leitt af aðalræðisskrifstofu Íslands í New York í góðu samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð, Íslandsstofu og hin Norðurlöndin. Ég sé mikil tækifæri fyrir Ísland í að nýta jákvætt vörumerki og víðtækt tengslanet Norðurlandanna, í þágu íslenskrar viðskiptasóknar inn á nýja markaði. Ef vel tekst til mætti hugsa sér að skoða að opna fleiri slík setur undir hatti Norðurlanda á fjar mörkuðum t.a.m. í Asíu“.