Iðnþing Samtaka iðnaðarins (SI) stendur nú yfir á Grand hótel og verið var að tilkynna niðurstöðu úr kjöri til stjórnar og ráðgjafaráðs SI.

Helgi Magnússon var endurkjörinn formaður með 92,42% greiddra atkvæða en kosningaþátttaka var 74,07%. Helgi verður því formaður Samtaka iðnaðarins fram til Iðnþings 2010

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SI en engir aðrir fengu atkvæði.

Alls gáfu tíu kost á sér til stjórnar og ráðgjafaráðs.

Stjórn

Þessi fjögur hlutu flest atkvæði og setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára:

  • Aðalheiður Héðinsdóttir, Kaffitár ehf.
  • Andri Þór Guðmundsson, Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf.
  • Loftur Árnason, ÍSTAK hf.
  • Tómas Már Sigurðsson, Alcoa Fjarðaál sf.

Fyrir í stjórn Samtakanna eru:

  • Anna María Jónsdóttir
  • Ingvar Kristinsson, Marel hf.
  • Þorsteinn Víglundsson, BM Vallá ehf.

Ráðgjafaráð

Þessir sex komu næst að atkvæðatölu og eru kjörnir til setu í ráðgjafaráði Samtaka iðnaðarins til eins árs og eru jafnframt varamenn í stjórn Samtakanna.

Þeim er raðað hér í stafrófsröð.

  • Andrés Gunnlaugsson, Hjálmarsson ehf.
  • Bolli Árnason, GT Tækni ehf.
  • Einar Birgir Kristjánsson, Tandraberg ehf.
  • Magnús Hilmar Helgason, Launafl ehf.
  • Sigurður Eggert Gunnarsson, Gogogic ehf.
  • Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, Unique Hár og Spa