Nýherji keypti í dag eigin bréf af Þór Konráðssyni, fjármálastjóra Viðju, dótturfélags Nýherja.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en um er að ræða 750 þúsund hluti í félaginu sem keyptir eru á 19 krónur hvern hlut. Heildarverð viðskiptanna nemur því 14.250.000 krónum.

Skýringin á kaupunum eru að sala bréfanna sé í tengslum við uppgjör á lánasamningi við Íslandsbanka.

Þór á eftir sem áður 365 þúsund hluti í félaginu.