Nýi Glitnir hefur ákveðið að fella tímabundið niður uppgreiðslugjald verðtryggðra húsnæðislána.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum en uppgreiðslugjald samkvæmt skilmálum þessara lána er 2%.

„Með þessari aðgerð vill Glitnir koma til móts við þá viðskiptavini sem vilja greiða upp sín lán. Frá og með deginum í dag er því engin þóknun tekin fyrir uppgreiðslu verðtryggðra húsnæðislána, né vegna innáborgunar á höfuðstól,“ segir í tilkynningu bankans.

„Við höfum fundið fyrir áhuga hjá viðskiptavinum að greiða niður þessi lán,“ segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Nýja Glitnis.

„Sá áhugi er mjög skiljanlegur þegar verðbólga hefur verið jafn há og raun ber vitni. Þetta er ein af þeim leiðum sem við erum að kynna þessa dagana til þess að styðja við bakið á okkar viðskiptavinum.“