Staðfest hefur verið að John Holland-Kaye verður næsti forstjóri Heathrow flugvallar í Bretlandi. Hann tekur við starfinu af Colin Matthews sem hefur verið forstjóri í sex ár.

Ráðning Holland-Kaye kemur ekki á óvart, enda höfðu margir sérfræðingar spáð þvi að hann yrði fyrir valinu þegar tilkynnt var að Matthew myndi láta af störfum.

John Holland-Kaye hefur starfað hjá Heathow um árabil, meðal annars sem þróunarstjóri.